Fara beint í efnið

5. júlí 2023

Ný vefsíða Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur flutt vefsvæði sitt yfir á Ísland.is. Með breytingunum er vonast til að íbúar Austurlands hafi betra aðgengi að upplýsingum er varða þjónustu stofnunarinnar.

Íslandis

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur bæst í hóp þeirra opinberu stofnanna sem hefur fært vefsíðu sína yfir á Ísland.is. Yfirfærsla vefsins var unnin í samstarfi við Stafrænt Ísland sem hefur það hlutverk að styðja við stofnanir ríkisins á stafrænni vegferð þeirra en HSA hefur undanfarin ár reynt að aðlaga starfsemi sína stafrænum leiðum eins og hægt er. Við yfirfærslu vefsins var efni hans endurskoðað og uppfært með það að markmiði að hafa upplýsingar aðgengilegar og hnitmiðaðar. Áhersla var því lögð á að hafa upplýsingar notendavænar og skiljanlegar með það að markmiði að stytta boðleiðir og þannig auka þjónustu við íbúa Austurlands.  
Vefurinn verður áfram í stöðugri þróun og er ábendingum tekið fagnandi.

Ritari Seyðisfirði