Einstaklingur hefur greinst með mislinga á Norðausturlandi
Sóttvarnalæknir fékk tilkynningu í gærkvöldi vegna mislinga sem höfðu greinst hjá fullorðnum einstaklingi á Norðurlandi. Grunur vaknaði um mislinga og var greining staðfest í kjölfarið. Viðkomandi einstaklingur er í einangrun í heimahúsi.