2. desember 2020
2. desember 2020
Verkefni flutt til sýslumannsins í Vestmannaeyjum
Dómsmálaráðuneytið hefur falið embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum það verkefni ráðuneytisins að gefa út yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar stofnunar hjúskapar erlendis.
Verkefnið felst í móttöku beiðna og fylgiskjala og útgáfu yfirlýsingar, að uppfylltum skilyrðum, um að ekkert sé til fyrirstöðu samkvæmt íslenskum lögum að viðkomandi geti gengið í hjúskap erlendis. Mun sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum taka við verkefninu frá og með deginum í dag og sinna því á landsvísu.
Við yfirfærslu verkefnisins var leitast eftir því að einfalda umsóknarferlið eins og kostur er. Sótt er um yfirlýsingu sýslumanns með rafrænum hætti á vef sýslumanna og mun umsækjanda berast yfirlýsing sýslumanns með rafrænum hætti á island.is.
Slóðina á umsóknina má finna á island.is/gifting-erlendis