Fara beint í efnið

11. apríl 2022

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2022

Athöfn vegna úthlutunar styrkja úr Lýðheilsusjóði fór fram í dag, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Þar úthlutaði Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, rúmri 81 milljón króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 151 verkefnis og rannsókna.

Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Áhersla er lögð á að styrkja aðgerðir sem miða m.a. að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna og efla félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika. Einnig var lögð áhersla á áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum fyrir árið 2022 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs, sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust.

Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu og lýðheilsustefnu heilbrigðisráðuneytisins.

Um lýðheilsusjóð