Fara beint í efnið

27. júní 2023

Upplýsingabréf til þeirra sem starfa með börnum í íþrótta- og tómstundastarfi

Embætti landlæknis hefur í samstarfi við fleiri aðila gefið út upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og annarra samtaka sem vinna með börnum til þess að minna á sameiginlega ábyrgð á því að koma í veg fyrir ofbeldi og bregðast við ofbeldi.

Upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka

Í sumar eru ýmsar samkomur, viðburðir og mannamót þar sem börn koma að.  Það er mikilvægt að öll þau sem koma að skipulagningu og framkvæmd íþrótta- og æskulýðsstarfs séu upplýst um það til hvers er ætlast af þeim varðandi hegðun og framkomu. Þá er einnig mikilvægt að þekkja einkenni ofbeldis og vita hvert skal leita ef vaknar grunur um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi. Við minnum á að leita má ráða eða leiðsagnar hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs um samskipti.

Í upplýsingabréfinu eru gagnlegir hlekkir með fræðslu gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, gátlista varðandi nýráðningu starfsfólks og sjálfboðaliða ásamt leiðbeiningum varðandi öflun upplýsinga úr sakaskrá. Þar er einnig að finna hlekk á samræmda viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Ætíð á að tilkynna til 112, og/eða barnaverndarþjónustu og lögreglu ef vaknar grunur um brot gegn barni.  

Upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka (PDF)