Fara beint í efnið

26. janúar 2024

Umsókn um byggðakvóta 2023/2024 (3)

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

fiskistofa byggðakvoti mynd

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024 og vakin er athygli á auglýsingu (1) um sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2023/2024.

Úthlutað er fyrir:

  • Arnarstapa

  • Árskógssand 

  • Bíldudal 

  • Brjánslæk  

  • Dalvík 

  • Drangsnes 

  • Eyrarbakka  

  • Flateyri 

  • Garð 

  • Grenivík 

  • Grímsey 

  • Hauganes 

  • Hnífsdal 

  • Hólmavík 

  • Hvammstanga 

  • Höfn 

  • Ísafjörð  

  • Norðurfjörð 

  • Ólafsfjörð  

  • Patreksfjörð 

  • Rif 

  • Siglufjörð 

  • Stokkseyri 

  • Suðureyri  

  • Tálknafjörð 

  • Þingeyri 

  • Þorlákshöfn 

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is

    Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

  • Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknagátt á sama tíma og sótt er um.

Umsóknafrestur er til og með 9. febrúar 2024.

Nánari upplýsingar

Umsóknargátt Fiskistofu