Fara beint í efnið

30. maí 2023

Umsókn um byggðakvóta 2022/2023 (6)

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023.

viti

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskisksipa á fiskveiðiárinu 2022/2023 og vakin er athygli á auglýsingu (4) um sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022/2023.

Úthlutað er fyrir:

  • Voga

  • Norðurfjörð í Árneshreppi

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknargáttina þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is

    Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

  • Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um.

  • Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2023.

Nánari upplýsingar

Umsóknargátt Fiskistofu