Fara beint í efnið

23. mars 2023

Umsókn um byggðakvóta 2022/2023 (4)

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023.

viti

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskisksipa á fiskveiðiárinu 2022/2023 og vakin er athygli á auglýsingu (2) um sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022/2023.

Úthlutað er fyrir:

  • Akureyrarbær vegna Grímseyjar

  • Húnaþing vestra

  • Kaldrananeshreppur

  • Strandabyggð

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknargáttina þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is

    Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

  • Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um.

  • Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2023.

Nánari upplýsingar

Umsóknargátt Fiskistofu