20. ágúst 2024
20. ágúst 2024
Umsjón fræverkunar í Gunnarsholti
Land og skógur leitar að starfskrafti í fullt starf til að hafa umsjón með fræverkun í Gunnarsholti. Umsjón með fræverkunarstöð og plöntugerði í Gunnarsholti. Meðal verkefna er verkun fræs til landgræðslu og skógræktar, umsjón með birgðum og dreifingu fræs og plantna frá Gunnarsholti, umhirða í fræverkunarstöð, sáning, áburðardreifing, gróðursetning og uppskerustörf.
Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Leitað er að starfskrafti til að hafa umsjón með fræverkun í Gunnarsholti. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með fræverkunarstöð og plöntugerði í Gunnarsholti
Verkun fræs til landgræðslu og skógræktar
Umsjón með birgðum og dreifingu fræs og plantna frá Gunnarsholti
Umhirða í fræverkunarstöð
Sáning, áburðardreifing, gróðursetning og uppskerustörf
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Vinnuvélaréttindi á dráttarvélar (I) og lyftara (J) nauðsynleg
Tölvufærni og þekking á helstu Microsoft-forritum nauðsynleg
Gott vald á töluðu og rituðu máli á íslensku nauðsynleg, hæfni í erlendu tungumáli er kostur
Skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi
Hæfni til að miðla upplýsingum
Góðir samskiptahæfileikar
Reynsla af verkefnastjórnun og gæðaeftirliti er kostur
Haldgóð reynsla af landgræðslu, skógrækt eða jarðrækt er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 20. september.
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum. Í Gunnarsholti vinna um 30 manns. Þar er rekin fræverkunarstöð auk margvíslegrar starfsemi á sviði landgræðslu og skógræktar.Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.09.2024
Sótt er um starfið á Starfatorgi
Nánari upplýsingar veitir
Gústav Magnús Ásbjörnsson, gustav.magnus.asbjornsson@landogskogur.is