21. september 2026
21. september 2026
Tryggingastofnun stígur öll níu skrefin
Tryggingastofnun hefur innleitt allar níu kjarnaþjónustur Stafræns Íslands og er nú fjórða stofnunin til að ljúka öllum skrefunum, á eftir Samgöngustofu, Sjúkratryggingum og sýslumönnum. Viðurkenningar fyrir Stafræn skref voru afhentar á ráðstefnunni Tengjum ríkið 17. september.

Stafræn skref eru hvatningarviðurkenningar fyrir opinbera aðila sem nýta sameiginlegar lausnir Stafræns Íslands til að byggja upp stafræna þjónustu með þarfir notenda að leiðarljósi. Skrefin eru nú níu og vísa til eftirfarandi kjarnaþjónusta: Stafræns pósthólfs, innskráningar og umboða, Ísland.is appsins, Umsóknakerfis, Minna síðna, Straumsins, vefs, Þjónustukerfis og gervigreindaraðstoðar.
Tryggingastofnun stígur öll níu skrefin
Tryggingastofnun er ein stærsta þjónustustofnun landsins og þjónusta hennar snertir stóran hluta landsmanna. Stofnunin greiðir tæplega 77 þúsund einstaklingum mánaðarlega ellilífeyri, örorkulífeyri, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og fleira. Innleiðing allra níu skrefanna er því mikilvægur áfangi í að gera þjónustu Tryggingastofnunar einfaldari og aðgengilegri almenningi.
Nýjustu skref ársins 2026
Tryggingastofnun hefur innleitt öll níu skrefin.
Landspítali hefur náð sjö skrefum.
Vinnumálastofnun hefur náð sex skrefum.
Staðan eftir afhendinguna
Alls hafa nú 23 opinberir aðilar stigið fimm eða fleiri Stafræn skref.
Níu skref
Tryggingastofnun
Samgöngustofa
Sjúkratryggingar
Sýslumenn
Átta skref
Fjársýsla ríkisins
Vinnueftirlit ríkisins
Sjö skref
Embætti landlæknis
Landspítali
Lögreglan
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Sex skref
Háskóli Íslands
Þjóðskrá Íslands
Útlendingastofnun
Vinnumálastofnun
Fimm skref
Átta opinberir aðilar hafa stigið fimm Stafræn skref: Sjúkrahúsið á Akureyri, Skatturinn, Umhverfis- og orkustofnun, Ríkissaksóknari, Vegagerðin, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, Fiskistofa og Náttúruhamfaratrygging Íslands.