Stafræn skref opinberra aðila
Stafræn skref
Stafrænu skrefin eru níu og táknræn fyrir þær kjarnaþjónustur Stafræns Íslands sem standa opinberum aðilum til boða.
Sem hvataverðlaun eru Stafrænu skrefin leið til að ýta undir nýtingu kjarnalausnanna og þar með markmið stjórnvalda um eflingu stafrænnar opinberrar þjónustu. Viðurkenningar eru veittar árlega, í tengslum við ráðstefnuna Tengjum ríkið. Fyrsta afhendingin fór fram árið 2022.
Öll 9 skrefin eiga ekki við um þjónustu allra opinberra aðila.
Opinberir aðilar sem eru komnar af stað í vegferðinni fá birta stöðu verkefna sem sýnir hvar þeir eru staddir. Staðan er uppfærð einu sinni á ári – á hverju hausti í aðdraganda ráðstefnunnar.
Hér má finna lista yfir opinbera aðila og þær þjónustur Stafræns Íslands sem þeir hafa innleitt.
Stafrænu skrefin munu þróast á næstu árum í takti við stafræna þróun.

Viðurkenningar árið 2026: Tryggingastofnun fyrir 9 skref, Landspítali fyrir 7 skref og Vinnumálastofnun fyrir 6 skref.

Viðurkenningar árið 2025: Vinnueftirlitið fyrir 8 skref, Útlendingastofnun, embætti landlæknis og MMS fyrir 7 skref, Lögreglan, Þjóðskrá og Háskóli Íslands fyrir 6 skref.

Viðurkenningar árið 2024: Sjúkratryggingar og Samgöngustofa fyrir 9 skref, Tryggingastofnun og Fjársýslan fyrir 8 skref, HMS og Vinnueftirlitið fyrir 7 skref.

Viðurkenningar árið 2023: Sýslumenn fyrir 9 skref, Sjúkratryggingar fyrir 8 skref, Samgöngustofa og Fjársýslan fyrir 6 skref.

Viðurkenningar árið 2022: Fjársýslan, Ríkislögreglustjóri og Sýslumenn.
