Fara beint í efnið

11. september 2026

Tímabundnar tafir á afhendingu nýrra ökuskírteina

Unnið er að því að skipta um birgja fyrir plastið sem notað er í framleiðslu ökuskírteina. Vegna þessa eru tímabundnar tafir á afhendingu nýrra plasta.

Af þeim sökum mun afhendingu ökuskírteinis sem hafa verið pöntuð seinkað. Á meðan verður framleiðslu ökuskírteina forgangsraðað eftir mikilvægi.

Starfsfólk sýslumanna vinnur nú hörðum höndum að því að lágmarka áhrif tafanna á einstaklinga. Unnið er að því leysa málið fljótt og væntingar eru um að hægt verði að afhenda nýja útgáfu ökuskírteina í desember.

Stafrænt ökuskírteini

Hægt er að nálgast stafrænt ökuskírteini í Ísland.is appinu. Sæktu appið í snjalltæki, skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og veldu ökuskírteini undir „Skírteinin mín“. Stafræna ökuskírteinið verður aðgengilegt í appinu þegar umsókn hefur verið afgreidd.

Bráðabirgðaakstursheimild

Þeir sem þurfa staðfestingu á ökuréttindum meðan beðið er eftir plastökuskírteini geta fengið útprentaða bráðabirgðaakstursheimild hjá sýslumanni.

Athugið

Að stafrænt ökuskírteini og bráðabirgðaakstursheimild gildir aðeins á Íslandi og kemur því ekki í stað plastökuskírteinis á ferðalögum erlendis.