Fara beint í efnið

21. maí 2026

Þrjár fjártæknilausnir náðu áfangasigri í verkefni um viðskiptakort ríkisins

Þrjár fjártæknilausnir hafa uppfyllt tæknilegar grunnkröfur Fjársýslunnar í verkefni um rafræn gagnaskil vegna viðskiptakorta ríkisins og ljúka þar með fyrsta áfanga verkefnisins. Lausnirnar Kardio, Kortalausnir og Síminn Pay eru því komnar áfram í næsta áfanga prófana.

Verkefnið snýst um að opna á möguleika fyrir nýjar leiðir við móttöku, meðhöndlun og bókun gagna vegna viðskiptakorta hins opinbera. Í dag felst ferlið að stórum hluta í handvirkri vinnu við söfnun fylgigagna, yfirferð upplýsinga og bókun kortafærslna. Markmiðið er að auka skilvirkni, bæta gagnagæði, draga úr pappírsgögnum og endurtekinni handavinnu í ferlinu.

Í fyrsta áfanga prófana var meðal annars horft til þess hvort fjártæknilausnir gætu skilað bókhaldsgögnum á rafrænu formi í samræmi við tæknilegar grunnkröfur Fjársýslunnar. Sömuleiðis hvort reynsla stofnana af lausnunum benti til þess að þær gætu nýst í daglegu ferli við meðhöndlun kortafærslna.

Kardio, Kortalausnir og Síminn Pay hafa nú uppfyllt þær tæknilegu grunnkröfur sem gerðar voru til þess að komast áfram í næsta áfanga verkefnisins. Næstu skref felast í að fullmóta öll móttökuskilyrði og áframhaldandi prófunum með nokkrum ríkisaðilum.

Frekari upplýsingar má nálgast á vef verkefnisins: Fjártæknilausnir fyrir viðskiptakort ríkisins | Ísland.is