Fara beint í efnið

Áskoranir hins opinbera

Fjártæknilausnir fyrir viðskiptakort ríkisins

Fyrst til að ljúka öðrum áfanga nýsköpunarverkefnis um viðskiptakort ríkisins 

Fjártæknifyrirtækið Kardio hefur fyrst þátttakenda lokið öðrum áfanga nýsköpunarverkefnis Fjársýslunnar um rafræn gagnaskil vegna innkaupa- og viðskiptakorta. Tvö önnur fjártæknifyrirtæki taka enn þátt í verkefninu og þróunar- og prófunarferlið heldur áfram.  

Markmið verkefnisins er að einfalda rekstur og uppgjör innkaupa- og viðskiptakorta hjá ríkisaðilum með rafrænum gagnaskilum. Þannig er stefnt að minni handavinnu og pappírsnotkun, betri gagnagæðum, skilvirkari meðhöndlun og bókun kortafærslna í Orra, fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins. 

Kröfur mótaðar og lausnir prófaðar 

Verkefnið hófst haustið 2024 með markaðskönnun og samtali við fjártækniaðila í samstarfi við Fjártækniklasann. Síðan þá hefur verkefnið þróast í markvisst ferli þar sem kröfur um móttöku rafrænna bókhaldsgagna eru mótaðar og lausnir prófaðar til að staðfesta að þær uppfylli kröfurnar. 

Hlutverk Fjársýslunnar er að skilgreina móttökukröfurnar,  aðlaga og prófa Orra vegna rafrænna gagnaskila fyrir innkaupa- og viðskiptakort. Fyrirtæki sem ljúka öðrum áfanga hafa sýnt fram á að lausnir þeirra uppfylla skilgreindar kröfur Fjársýslunnar. Að loknum áfanganum fá þau heimild Fjársýslunnar til að stofna til viðskipta við stofnanir í A-hluta ríkissjóðs vegna rafrænna gagnaskila. Fjársýslan leggur ekki mat á hvaða lausn hentar einstökum stofnunum best og mælir ekki með einni lausn umfram aðra. 

Þróunarvettvangur en ekki innkaupaferli 

Fjársýslan hefur frá upphafi lagt áherslu á að verkefnið sé vettvangur til að þróa og sannreyna kröfur og lausnir vegna rafrænna gagnaskila en ekki formlegt innkaupaferli. Þátttaka fjártæknifyrirtækja í verkefninu felur ekki í sér samning um þróun eða kaup á lausn. Heimild til að stofna til viðskipta við stofnanir í A-hluta ríkissjóðs felur í sér tímabundinn forgang en ekki einkarétt að framtíðarviðskiptum við Fjársýsluna eða aðra ríkisstofnanir. Innkaupin eru útboðsskyld þegar þau ná viðmiðunarfjárhæð laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, 20.657.000 kr.  

Stefnt er að því að fleiri en ein lausn uppfylli kröfur Fjársýslunnar og geti nýst ríkisaðilum við rafræn gagnaskil vegna viðskiptakorta. Hver stofnun metur hvaða lausn hentar þörfum hennar og hagar kaupum í samræmi við gildandi innkaupareglur. Staðfesting Fjársýslunnar á að lausn uppfylli skilgreindar kröfur felur hvorki í sér innkaupasamning né skuldbindingu um framtíðarviðskipti. 

Tekið er á móti fyrirspurnum um verkefnið í gegnum beiðnakerfi Fjársýslunnar með tölvupóstfanginu vidskiptakort@fjs.is

Eldri verklýsing