Fara beint í efnið

16. september 2026

Tengjum ríkið haldin á morgun

Á morgun, 17. september, fer ráðstefnan Tengjum ríkið 2026 fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „framtíð Ísland.is“.

Á morgun, 17. september, fer ráðstefnan Tengjum ríkið 2026 fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „framtíð Ísland.is“.

Dagskráin hefst kl. 13:00 með fjölbreyttum fyrirlestrum og umræðum um þróun stafrænnar þjónustu hins opinbera. Við lifum á áhugaverðum tímum þar sem ný tæknibylting ryður sér til rúms og mun snerta flesta kima samfélagsins.

Opinber þjónusta er þar ekki undanskilin. Gervigreind, í hvaða mynd sem hún þróast, mun hafa áhrif á opinbera þjónustu, bæði stafræna og í raunheimum, og gæti breytt því hvernig við nýtum hana.

Síðustu forvöð eru að skrá sig enda öll sæti að fyllast, en einnig verður hægt að fylgjast með í streymi.

Við hlökkum til að sjá sem flest, til að fræðast saman og tengjast.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.