Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Tengjum ríkið 2026

Tengjum ríkið, árleg ráðstefna Stafræns Íslands, fer fram fimmtudaginn 17. september á Hilton Nordica. Dagskráin verður einnig aðgengileg í streymi.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Framtíð Ísland.is“.

Skipulagning er í fullum gangi og dagskráin að fyllast af áhugaverðum og spennandi erindum sem hverfast meðal annars um spurningar á borð við:

  • Hvernig eru opinberir vefir að þróast? Verða þeir til eftir 5 ár?

  • Hvernig gætu stofnanir þurft að þróast?

  • Hvaða áhrif hefur notkun gervigreindar á traust til opinberrar þjónustu?

  • Hvaða hæfni þarf starfsfólk að hafa?

  • Hvað getum við bráðum hætt að gera?

Skrá mig á Tengjum ríkið 2026

Verð í sal: 14.900 kr.
Streymi: 4.900 kr.

Athugið að einungis er tekið á móti greiðslum með korti. Ekki er hægt að fá sendan reikning.

Meðal fyrirlesara í ár

Christine Bellamy

Leiðtogi í stafrænni opinberri þjónustu sem kom inn í ríkiskerfið 2022 eftir áratug í stafrænni umbreytingu hjá BBC; Bellamy var forstöðumaður GOV.UK og síðar forstjóri Government Digital Service (GDS). Í dag er hún starfandi aðalframkvæmdastjóri hjá GDS og leiðir stefnumótandi vöruþróun opinberrar stafrænnar þjónustu breska ríkisins. Nánar á LinkedIn

Frá orðum til athafna: Breytingar í opinberri þjónustu

Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans — fyrst sem stjórnandi MindLab og síðar forstjóri Danish Design Center. Í dag er Bason meðstofnandi Transition Collective auk þess að starfa sem höfundur, fyrirlesari og ráðgjafi um sjálfbærar umbreytingar, leiðtogahæfni og opinbera nýsköpun.

Í erindi sínu mun Bason fjalla um hvernig ná má fram varanlegum og árangursríkum breytingum í opinberri þjónustu. Á grundvelli rannsókna sinna og skrifa, og þriggja áratuga reynslu af samstarfi við og innan stjórnsýslunnar í Danmörku og á heimsvísu, deilir hann innsýn og dæmum um hvernig móta má framtíðarsýn og leiða breytingingar sem skipta raunverulegu máli fyrir borgara og samfélag.

Nánar á LinkedIn.

Hjálmar Gíslason

Stofnandi og framkvæmdastjóri GRID. Hjálmar starfaði áður sem framkvæmdastjóri vörustjórnunar hjá Qlik, eftir kaup Qlik á fyrirtækinu DataMarket sem hann stofnaði 2008. Hjálmar er gagnanörd og frumkvöðull af lífi og sál sem hefur um árabil birt pistla um fjölbreytt málefni tengd tækni- og atvinnuþróun ýmsum vettvangi, meðal annars á vef sínum hjalli.com. Nánar á LinkedIn.


Nánari dagskrá verður kynnt hér á síðunni.


Vinnustofur 2026

Í tengslum við ráðstefnuna skipuleggur Stafrænt Ísland þrjár vinnustofur um afmörkuð viðfangsefni. Þær fara fram að morgni ráðstefnudagsins og eru aðeins ætlaðar boðsgestum.

Niðurstöður vinnustofanna eru nýttar til áframhaldandi þróunar og samtals við atvinnulíf og stjórnkerfi.