Fara beint í efnið

29. ágúst 2024

Tengjum ríkið 2024 - forskráning

Tengjum ríkið er árleg ráðstefna Stafræns Íslands um stafræna framtíð hins opinbera sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi þann 26. september 2024.

Tengjum-rikid-2024-Mailchimp-1200x842

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er breytingastjórnun með sérstaka áherslu á innleiðingu stafrænnar þjónustu og ferla hjá opinberum aðilum. Dave Rogers og Liz Whitfield eru lykilfyrirlesarar ársins en þau hafa bæði tekið þátt í og náð góðum árangri í fjölbreyttum og stórum stafrænum umbreytingaverkefnum hjá bresku stjórnsýslunni.

Forskráning og nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef Stafræns Íslands.

Þá verða erindi frá fimm stofnunum sem hafa náð góðum árangri í innleiðingu stafrænna ferla og Stafrænt Ísland mun kynna þær nýjungar sem eru framundan. Ráðstefnunni lýkur með Stafrænum skrefum stofnana þar sem þeim stofnunum er veitt viðurkenning sem hafa náð góðum árangri í stafrænni innleiðingu.

Að morgni ráðstefnudags verða fjórar vinnustofur sem snúa að þjónustu, tækniumhverfi og þróun, Ísland.is og ávinningi stafrænna verkefna. Markmið með vinnustofunum er markvisst framlag í þá stafrænu þróun sem er framundan næstu misserin. Þátttakendur á vinnustofunum forstöðumenn, rekstrarstjórar, þjónustustjórar, vefstjórar og tæknistjórar hjá hinu opinbera. Vinnustofurnar verða lokaðar en hægt er að óska eftir aðkomu og upplýsingum um vinnustofurnar með því að senda póst á island@island.is með fyrirsögninni Tengjum ríkið vinnustofur.

Stafrænt Ísland stendur að ráðstefnunni en verkefnastofan er hluti af fjármála- og efnahagsráðuneytinu og hefur það hlutverk að styðja við stafræna vegferð opinberra aðila.