Fara beint í efnið

24. september 2026

Talnabrunnur – 6. tölublað 2026

Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út.

Nýr Talnabrunnur sýnir að tíðni þungunarrofa á Íslandi hefur verið stöðug frá gildistöku laga um þungunarrof árið 2019. Árið 2025 voru skráð 1.117 þungunarrof eða 12,2 á hverjar 1.000 konur á frjósemisaldri. Greiningin bendir jafnframt til þess að meirihluti þungunarrofa sé framkvæmdur snemma á meðgöngu og með lyfjameðferð. Ísland er áfram nálægt norrænu meðaltali og niðurstöðurnar benda ekki til þess að lagabreytingin árið 2019 hafi leitt til fjölgunar þungunarrofa eða fleiri þungunarrofa síðar á meðgöngu.

Greinarhöfundar eru Arna Harðardóttir og Védís Helga Eiríksdóttir