Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. desember 2025

Táknmálsnámskeið vormisseri 2026

Táknmálsnámskeið á SHH vormisserið 2026

Grunnnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Kennt er eftir samkomulagi. Námskeiðin eru foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.

Framhaldsnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Kennt er eftir samkomulagi. Námskeiðið er foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 1, kvöldnámskeið fyrir byrjendur. Kennt verður á mánudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst mánudaginn 19. janúar og lýkur mánudaginn 27. apríl . Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 2, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 -1. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst miðvikudaginn 21. janúar og lýkur miðvikudaginn 29. apríl. Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 3, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 – 2. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst miðvikudaginn 21. janúar og lýkur miðvikudaginn 29. apríl. Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Þess má geta að öll námskeið sem í boði eru, eru táknmálsfólki og aðstandendum þess þeim að kostnaðarlausu.

Hægt er að skrá sig hér: https://island.is/s/shh/skraning-a-namskeid

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlega sendið póst á taknmal@shh.is