Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Táknmálsnámskeið vorannar

Táknmálsnámskeið vorið 2025

Grunnnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Námskeiðið hefst 8. janúar og lýkur 11. júní. Kennt verður alla miðvikudaga frá kl. 14:30 ö 16:00. Námskeiðið er foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 1, kvöldnámskeið. Kennt verður á mánudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30. klst. og hefst mánudaginn 13. janúar og lýkur mánudaginn 28. apríl. Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 2, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 -1 Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst og hefst miðvikudaginn 15. Janúar og lýkur miðvikudaginn 30. Apríl. Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 3, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 – 2. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst og hefst miðvikudaginn 15. janúar og lýkur miðvikudaginn 30. apríl. Námskeiðið kostar 49.700 kr.

Hægt er að skrá sig hér: https://island.is/s/shh/skraning-a-namskeid


Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlega sendið póst á taknmal@shh.is