18. júní 2026
18. júní 2026
Táknmálsnámskeið SHH haustið 2026
Opið er fyrir skráningar á táknmálsnámskeið haustið 2026.

Námskeið haustsins:
Grunnnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Kennt er eftir samkomulagi. Námskeiðin eru foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.
Framhaldsnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Kennt er eftir samkomulagi. Námskeiðið er foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.
Kaffihúsahittingur foreldra táknmálsbarna. Markmiðið er að efla færni foreldra í íslensku táknmáli í notalegu og óformlegu umhverfi þar sem gefst tækifæri til að læra, æfa og mynda tengsl við aðra foreldra. Námskeiðið fer fram á SHH eða kaffihúsum borgarinnar. Kennt verður annan hvern þriðjudag og hefst kennslan þriðjudaginn 15. september og lýkur þriðjudaginn 8. desember. Kennt verður frá kl. 19:30 – 21:30. Námskeiðið hentar þeim sem hafa grunn í íslensku táknmáli.
Framhaldsnámskeið fyrir döff innflytjendur. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa nokkra undirstöðu í íslensku táknmáli. Kennt verður 1 x í viku, á mánudögum frá kl. 18 – 20. Námskeiðið hefst mánudaginn 7. september og lýkur mánudaginn14. desember. Vinnumálastofnun býður döff innflytjendum á þetta námskeið.
Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 1, Dagnámskeið fyrir byrjendur. Kennt verður á mánudögum frá kl. 12:00 – 14:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst mánudaginn 7. september og lýkur mánudaginn14. desember. Námskeiðið kostar 39.750 kr.
Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 1, kvöldnámskeið fyrir byrjendur. Kennt verður á mánudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst mánudaginn 7. september og lýkur mánudaginn14. desember. Námskeiðið kostar 49.700 kr.
Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 2, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 -1. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst miðvikudaginn 9. september og lýkur miðvikudaginn 16. desember. Námskeiðið kostar 49.700 kr.
Íslenskt táknmál, ÍTM A1 – 3, kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1 – 2. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:00 – 20:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst miðvikudaginn 9. september og lýkur miðvikudaginn 16. desember. Námskeiðið kostar 49.700 kr.
Þess má geta að öll námskeið sem í boði eru, eru táknmálsfólki og aðstandendum þess þeim að kostnaðarlausu. Eigir þú rétt á endurgjaldslausri táknmálskennslu þá þarftu að sækja um það áður en þú skráir þig á námskeiðið.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlegast sendið póst á taknmal@shh.is