16. júní 2026
16. júní 2026
Takið daginn frá – Fjársýsludagurinn 2026
Fjársýsludagurinn 2026 verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica.

Fjársýsludagurinn er ætlaður forstöðumönnum, stjórnendum, svo sem fjármálastjórum, innkaupastjórum og mannauðsstjórum, auk starfsfólks sem vinnur á fagsviðum Fjársýslunnar.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði yfir daginn þar sem meðal annars verða kynntar nýjungar í starfsemi Fjársýslunnar, fjallað um þróunarverkefni og boðið til samtals um umbætur og tækifæri framundan.
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða sendar þegar nær dregur.
Takið daginn frá – við hlökkum til að sjá ykkur 12. nóvember.