Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Fjársýsludagurinn 2026

Fjársýsludagurinn 2026 verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember á Hilton Reykjavík. Dagurinn er ætlaður forstöðumönnum ríkisaðila og starfsfólki sem starfar við eða kemur að fjármálum, fjárstýringu, innkaupum, mannauðs- og launamálum.

Á dagskrá eru fjölbreytt erindi og málstofur, auk tækifæra til að hittast og miðla reynslu. Hægt er að taka þátt á staðnum eða fylgjast með stjörnumerktum dagskrárliðum í streymi.

Þátttökugjald

  • Á staðnum: 22.900 kr.

  • Í streymi: 6.500 kr.

Þátttakendur á staðnum fá veitingar að hætti hússins yfir daginn og léttar veitingar í dagskrárlok – allt innifalið í þátttökugjaldinu.

Við minnum á að Fjársýsludagurinn er fræðsluviðburður og hvetjum því þátttakendur til að skoða möguleika á styrkjum starfsmenntasjóða.

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500