Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. febrúar 2026

Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna auglýsir eftir umsóknum

Hlutverk sjóðsins er að styðja við starfsemi fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein til ritunar efnis á íslensku. Umsóknarfrestur er 16. mars 2026, kl. 15:00.

Umsækjendur skulu kynna sér vel handbók sjóðsins fyrir yfirstandandi styrkár áður en umsókn er gerð.

Hægt er að sækja um styrki til að vinna að ritun fræðirita, fræðigreina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku á ýmsu formi.

Umsóknarfrestur rennur út 16. mars 2026, kl. 15:00.

Nánari upplýsingar á heimasíðu sjóðsins.