7. september 2023
7. september 2023
Starfatorg flyst á Ísland.is
Bjóðum Starfatorg velkomið á Ísland.is
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4YYPAqkr7SjPcaraLYWcu2/c67db4602767ec95b4e6a6e2a894196d/ISL_Starfatorg_Social_media_1200x1200px_0623.png?w=50&fm=webp&q=80)
![velkomin_starfatorg](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4YYPAqkr7SjPcaraLYWcu2/c67db4602767ec95b4e6a6e2a894196d/ISL_Starfatorg_Social_media_1200x1200px_0623.png?w=774&fm=webp&q=80)
Vefurinn starfatorg.is hefur flust af vef Stjórnarráðsins yfir á Ísland.is. Á vefnum eru auglýst laus störf hjá stofnunum ríkisins og ráðuneytum. Starfatorg.is hefur verið starfrækt í rúm 20 ár, eða frá árinu 2002, og hefur vefurinn alltaf verið mikið sóttur og birtar auglýsingar verið um 2.000 á ári, flestar á sviði heilbrigðis- og menntamála.
Að undanförnu hefur verið unnið að flutningi starfatorgsins á Ísland.is með það að markmiði að stíga enn frekari skref í að bæta upplýsingagjöf og stafræna þjónustu hins opinbera gagnvart almenningi. Vefurinn Ísland.is hefur að undanförnu þróast hratt sem opinber þjónustuvefur með ríka áherslu á góða framsetningu og aðgengi að þjónustu og upplýsingum.
Fjársýslan hefur umsjón með starfatorgi. Stofnanir eða ráðuneyti geta sett auglýsingar á starfatorg í gegnum ráðningarkerfi Orra. Mannauðs- og launasvið Fjársýslunnar veitir aðstoð við birtingu starfsauglýsinga á starfatorgi og er hægt að hafa samband í gegnum þjónustugátt Fjársýslunnar.