Fara beint í efnið

10. janúar 2022

Stafræn umsókn um Apostille vottun

Nú er hægt að sækja um Apostille vottun skjala stafrænt á Ísland.is

Hond_tolva

Utanríkisráðuneytið hefur í samstarfi við Ísland.is komið á fót nýrri þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem þurfa staðfestingu áritunar (Apostille vottun) á skjöl. Nú er hægt að sækja um og greiða fyrir Apostille vottun í gegnum gáttina island.is/apostille. Þessi nýja leið bæði einfaldar umsóknarferlið og sparar fyrirhöfn fyrir umsækjendur.

Apostille er formleg staðfesting á lögmæti skjala sem nota á erlendis. Apostille vottun felur í sér staðfestingu á að undirskrift og stimpill séu sannanlega útgefin eða vottuð af til þess bæru íslensku stjórnvaldi. Utanríkisráðuneytið sér um að apostille votta skjöl sem gefin eru út af íslensku stjórnvaldi.

Nánar um Apostille vottun á vef stjórnarráðsins.