Fara beint í efnið

23. mars 2023

Skref fyrir skref - morgunfundur 29. mars

VIRK, embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði miðvikudaginn 29. mars undir yfirskriftinni „Skref fyrir skref“.

Heilsueflandi vinnustaður merki

Morgunfundurinn verður haldinn hjá VIRK í Borgartúni 18 (í veitingasal, gengið inn að aftan) en einnig sem fjarfundur. Fundurinn hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10:00

Morgunfundurinn er öllum opinn en skrá þarf mætingu hér

Dagskrá

  • Kynning á nýrri vefsíðu og kynningarmyndböndum

  • Innleiðing Heilsueflandi vinnustaðar hjá Hafnarfjarðarbæ - Hulda Sólveig Jóhannsdóttir

  • Framkvæmd Heilsueflandi vinnustaðar hjá Eflu - Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Rakel Ýr Guðmundsdóttir

  • Spurningar og spjall

Morgunfundurinn er sá þrettándi í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Minnt er á að öll eru velkomin á morgunfundinn 29. mars en skrá þarf mætingu – hér. 

Facebook viðburður - Skref fyrir skref.