Fara beint í efnið

24. maí 2023

Skiptimarkaður með aflamark - tilboð óskast

Skiptimarkaður með aflamark er opinn frá 24. til 31. maí.

net hendur

Skiptimarkaðurinn opnar í dag 24.mai kl. 14:00 en lokar 31. maí 2023 kl 14:00.

Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 436,14 kr/kg. Hægt er að gera tilboð í neðangreindar tegundir fyrir aflamark í þorski:

Tegund

Þorskígildi

Magn

Eining

Makríll

0,16

6.839.120

kíló

Rækja við Snæfellsnes

0,84

19.875

kíló

Tilboð er sent í gegnum UGGA. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Staðfesting er send sjálfkrafa um móttöku tilboðs. Umsækjendur geta afturkallað/hætt við tilboð en tekið er fram að afturköllun á tilboði eftir tilboðsfrest er óheimil.

  • Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

  • Hver úthlutun aflaheimilda kostar 14.000 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.