Fara beint í efnið

19. október 2022

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

Tilboðsmarkaðurinn hefur þegar verið opnaður samkvæmt 4. gr.reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023

Skiptimarkaður

Tilboðsmarkaðurinn hefur þegar verið opnaður samkvæmt 4. gr.reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023, með síðari breytingum. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Í boði er aflamark tegunda sem sér á mynd, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 344,62 kr/kg.

Athugið að greitt er samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu fyrir hverja úthlutun aflaheimilda sem tekið er á tilboðsmarkaði.

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir: Umsóknir/Þjónusta. Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er óheimil.

Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 miðvikudaginn 26. október 2022