Fara beint í efnið

13. desember 2022

Sjálfsvíg janúar - júní 2022

Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2022.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2022.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði (ICD-10 kóðar: X60-X84). Skráningu dánarmeina er ekki hægt að ljúka fyrr en öll gögn og krufningaskýrslur frá réttarmeinafræðideild Landspítala hafa borist embætti landlæknis. Ferlið getur því verið nokkuð tímafrekt. Nú hafa bráðabirgðatölur um fjölda sjálfsvíga á fyrri hluta ársins 2022 verið gefnar út en hafa ber í huga að þær geta breyst þegar uppgjör alls ársins liggur fyrir.

Fjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði ársins 2022 var 16 eða 4,3 á hverja 100.000 íbúa. Þessar tölur samræmast fyrri árum en meðalfjöldi sjálfsvíga fyrstu 6 mánuði áranna 2017-2021 var 17 eða 4,8 á hverja 100.000 íbúa. Á þessu fimm ára tímabili, 2017-2021, var fjöldi sjálfsvíga fyrstu 6 mánuði hvers árs á bilinu 13–20 eða 3,8–5,7 á hverja 100.000 íbúa.

Nánar um tölfræði sjálfsvíga

Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg

Vegna fámennis þjóðarinnar þá geta litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Talsvert miklar sveiflur þurfa að verða til þess að hægt sé að staðhæfa að um marktæka breytingu sé að ræða. Því er mikilvægt að túlka ekki 6 mánaða bráðabirgðatölur sem vísbendingu um aukningu eða samdrátt á tíðni sjálfsvíga. Embætti landlæknis vinnur, ásamt fjölda samstarfsaðila, að innleiðingu aðgerðaáætlunar frá 2018 til að fækka sjálfsvígum á Íslandi en þar er um að ræða fjölþættar aðgerðir.

Embætti landlæknis hefur gefið út leiðbeiningar til fjölmiðla um ábyrga umfjöllun sjálfsvíga. Ábyrg og fræðandi umfjöllun um sjálfsvígshegðun þar sem einblínt er á batasögur og hjálparúrræði geta haft þau áhrif að einstaklingar í vanlíðan leiti sér hjálpar.

Það er hjálp til staðar

Mikilvægt er að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is, eða við ráðgjafa í síma Píeta samtakanna s. 552-2218. Pieta samtökin bjóða einnig uppá ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.  

Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendum við á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð s. 551-4141 og hjá Pieta samtökunum s. 552-2218.

 

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri lýðheilsusviði
netfang: gudrun.j.gudlaugsdottir@landlaeknir.is

Jón Óskar Guðlaugsson, verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviði