Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. febrúar 2026

Pourquoi-Pas?, Jamestown og Sankti Páll á Safnanótt

Um 50 gestir lögðu leið sína á Þjóðskjalasafn Íslands á Safnanótt föstudaginn 6. febrúar og hlýddu á fyrirlestra og skoðuðu muni sem tengdust þema kvöldsins sem að þessu sinni var Skipsskaðar við Ísland.

Gestir gátu meðal annars skoðað heiðursskjal og orðu sem skipstjórinn Þórður Sigurðsson hlaut fyrir þátt sinn í björgunarleiðangri vegna strands franska rannsóknarskipsins Pourquoi-Pas? árið 1936. Þá var til sýnis uppboðsbók úr strandi seglskipsins Jamestown, sem fórst við Hvalsnes á Reykjanesi 26. júní árið 1881, auk skjala, reikninga og bréfa sem urðu til í tengslum við strand franska spítalaskipsins Sankti Páls árið 1899. Á skjá gátu gestir einnig kynnt sér skráða skipsskaða við strendur Íslands á tímabilinu 1899 til 1910.

Á dagskrá voru fróðlegir fyrirlestrar þar sem Helgi Biering, þjóðfræðingur og skjalavörður, Illugi Jökulsson blaðamaður, útvarpsmaður og rithöfundur, og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni fluttu erindi um afdrif skipanna, aðdraganda og áhrif strandanna á nærliggjandi samfélög. Jafnframt var fjallað um björgunaraðgerðir, strandgóss og þau fjölbreyttu skjöl, bréf og muni sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands. Fjörugar og skemmtilegar umræður sköpuðust um erindin sem flutt voru. Nánar má lesa um fyrirlestra þeirra hér.

Að dagskrá lokinni gátu gestir kynnt sér safnið nánar, spjallað við fyrirlesara og skoðað skjöl og muni sem tengdust skipssköðunum.

Við þökkum öllum okkar gestum kærlega fyrir komuna á Safnanótt!

Gestir á Safnanótt 2026 í Þjóðskjalasafni
Gestir á Safnanótt 2026 í Þjóðskjalasafni

Gestir á Safnanótt 2026 í Þjóðskjalasafni

Safnanótt 2026 - Ólafur Arnar Sveinsson

Ólafur Arnar Sveinsson sviðstjóri miðlunar og rannsókna stýrði dagskrá

Helgi Biering flytur erindi á Safnanótt 2026

Helgi Biering

Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir flytur erindi á Safnanótt 2026

Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir

Illugi Jökulsson flytur erindi á Safnanótt 2026

Illugi Jökulsson