2. nóvember 2026
2. nóvember 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Nordplus 2027
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2027.

Hægt er að sækja um styrki innan allra undiráætlana Nordplus:
Nordplus Junior
Nordplus fullorðinsfræðsla
Nordplus háskólastig
Nordplus Horizontal
Nordplus norræn tungumál
Einnig er hægt að sækja um styrki fyrir undirbúningsheimsóknir vegna verkefna innan Nordplus Junior, Nordplus fullorðinsfræðslu og Nordplus norrænna tungumála.
Nordplus styður samstarf, hreyfanleika og þróunarverkefni á sviði menntunar á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Áætlunin veitir stofnunum og samtökum fjölbreytt tækifæri til að byggja upp alþjóðlegt samstarf, miðla þekkingu og reynslu og þróa ný verkefni þvert á landamæri.
Til að aðstoða væntanlega umsækjendur býður Nordplus upp á rafrænan upplýsingafund, Nordplus Café, þann 5. nóvember kl. 12:00-13:30 að íslenskum tíma. Þar verður farið yfir helstu styrkjamöguleika og umsóknarferlið auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að bera fram spurningar.
Nánari upplýsingar um styrkjamöguleika, umsóknarskilyrði og umsóknarferlið má finna á vef Nordplus.