Nordplus Café 5. nóvember
5. nóvember 2026
12:00 til 13:30
Á netinu

Þann 5. nóvember næstkomandi kl. 12:00-13:30 verður rafrænn upplýsingafundur um tækifærin í Nordplus.
Á Nordplus Café 2026 verður farið yfir helstu styrkjamöguleika innan Nordplus og umsóknarferlið kynnt. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að bera fram spurningar, tengjast samstarfsfólki frá öðrum löndum og sækja innblástur að nýjum samstarfsverkefnum.
Fundurinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á samstarfs- og skiptiverkefnum á sviði menntunar á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, hvort sem þeir hyggjast sækja um styrk í fyrsta sinn eða hafa áður tekið þátt í Nordplus.
Fundurinn fer fram á ensku og þátttaka er ókeypis. Skráning er opin til og með 4. nóvember.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Nordplus.