Fara beint í efnið

28. febrúar 2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leyfi til álaveiða til eigin neyslu

Umsóknarfrestur vegna ársins 2023 er til og með 1. apríl nk.

madur net

Allar álaveiðar eru óheimilar í sjó, ám og vötnum á Íslandi samkvæmt reglugerð um bann við álaveiðum nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu til álaveiða til eigin neyslu.

Skilyrði

  • Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á áli til eigin neyslu þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

  • Í umsóknum skal koma fram á hvaða landsvæði áformað er að veiða, hvaða veiðarfæri verði notuð og það magn sem sótt er um leyfi til að veiða.

  • Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um veiði umsækjanda síðustu 5 árin.

  • Leyfi eru bundin því skilyrði að allur afli sé skráður og að Fiskistofu verði sendar árlega skýrslur um sókn og afla.

  • Öll sala og markaðsfærsla á íslenskum ál og álaafurðum er bönnuð.

  • Skila skal umsóknum til fiskistofa@fiskistofa.is

Eftir skoðun á umsóknum og að fenginni umsögn um þær frá Hafrannsóknastofnu verða gefin út leyfi til álaveiði til eigin neyslu þar sem fram koma skilyrði fyrir veiðunum í samræmi við ofangreinda reglugerð.