Fara beint í efnið

14. október 2026

Opnað fyrir umsóknir um Nordplus styrki 2. nóvember 2026

Opnað verður fyrir umsóknir um styrki í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, þann 2. nóvember 2026. Styrkir eru í boði innan allra undiráætlana Nordplus. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2027.

Um Nordplus

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og hvetur skóla, stofnanir og samtök á sviði menntunar og þjálfunar til að sækja um styrki fyrir alþjóðlegt samstarf, starfsmanna- og nemendaskipti, sameiginleg verkefni og samstarfsnet milli menntastofnana í Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Grænlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og á Álandseyjum.

Hægt verður að sækja um styrki innan eftirfarandi Nordplus áætlana:

Einnig verður hægt að sækja um styrki fyrir undirbúningsheimsóknir vegna verkefna innan Nordplus Junior, Nordplus fullorðinsfræðslu og Nordplus norrænna tungumála.

Nordplus Café 5. nóvember

Nordplus býður áhugasömum að taka þátt í rafrænum upplýsingafundi, Nordplus Café, þann 5. nóvember kl. 12:00-13:30 að íslenskum tíma. Þar gefst tækifæri til að kynna sér samstarfs- og styrkjamöguleika innan áætlunarinnar. Nordplus-kaffið fer fram á ensku. Skráningu þarf að ljúka eigi síðar en 4. nóvember og fer fram á vef Nordplus.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið og styrkjamöguleika má finna á vef Nordplus.