Fara beint í efnið

1. júní 2026

Opið fyrir umsóknir í LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun ESB

LIFE er innleiðingaráætlun, ekki rannsóknaráætlun, sem þýðir að verkefnum er ætlað að stuðla að því að stefnur og löggjöf í þágu umhverfis- og loftslagsmála megi verða að veruleika.

Allar opinberar stofnanir og einkaaðilar, hvort sem eru fyrirtæki eða frjáls félagasamtök, geta sótt um og hvatt er til samstarfs sem flestra aðila sem geta lagt sitt af mörkum svo verkefnin geti haft sem best áhrif á íbúa.

Umsóknarfrestir eru í september.

Nánari upplýsingar um Life umsóknarfresti

Undir LIFE eru fjórar undiráætlanir með ólíkar áherslur og ættu flest verkefni á þessu sviði að geta fundið sér farveg innan einhverrar þeirra. Þar að auki eru ólíkar gerðir styrkja undir hverri og einni undiráætlun.

Undiráætlanirnar eru:

  • Náttúra og líffræðilegur fjölbreytileiki

  • Hringrásarhagkerfið og lífsgæði

  • Loftslagsbreytingar; aðlögun og aðgerðir

  • Orkuskipti

Verkefni í LIFE geta spannað allt frá 18 mánuðum til 10 ára og fer lengd þeirra eftir eðli undiráætlunar og gerð styrks

Landstengiliðir LIFE hjá Rannís sinna ráðgjöf við umsækjendur: