Vinnustofa í umsóknarskrifum í LIFE áætluninni
25. júní 2026
09:00 til 16:00
Staðsetning verður auglýst síðar

Þann 25. júní mun Rannís bjóða uppá heilsdags vinnustofu í umsóknarskrifum í LIFE áætluninni.
Vinnustofan er ætluð þeim sem hafa áhuga á að sækja um í LIFE áætluninni en opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir árið 2026 (sjá frétt á vef Rannís).
Vinnustofan er opin umsækjendum á öllum stigum umsóknarferlisins, þ.e. allt frá ómótaðri verkefnahugmynd yfir í fullmótað samstarfsverkefni, bæði vegna umsóknarfrests 2026 og 2027.
Vinnustofan verður leidd af erlendum ráðgjöfum og mun hún fara fram á ensku.
Þátttakendum býðst að senda inn verkefnahugmynd fyrir vinnustofuna til að fá verkefnamiðaða ráðgjöf frá ráðgjöfunum fram til 18. júní. Ráðgjafarnir munu mögulega hafa samband við þátttakendur fyrir vinnustofuna til að fá frekari upplýsingar til undirbúnings.
Skráningargjald er 4900 kr en innifalið í verðinu eru vinnustofan, hádegisverður og síðdegiskaffi. Reikningur verður sendur á þátttakendur eftir skráningu. Bent er á að mörg stéttarfélög styrkja þátttöku í námskeiði sem þessu og við hvetjum þátttakendur til að hafa samband við sitt stéttarfélag og kanna þann möguleika.
Athugið að takmörkuð pláss eru í boði og reynist eftirspurnin meiri en framboðið áskilja skipuleggjendur sér þann rétt að setja þátttakendur sem stefna á að skila inn LIFE umsókn í ár í forgang.
Staðsetning og nánari dagskrá verður send út síðar.
Skráning: Vinsamlegast skráið þátttöku hér (opið verður fyrir skráningar svo lengi sem pláss leyfir).
Vinnustofan er hluti af verkefninu LIFE-ICECAP sem samfjármagnað er af Evrópusambandinu.
