Fara beint í efnið

9. mars 2023

Öndunarfærasýkingar. Vika 9 árið 2023

Færri greindust með staðfesta inflúensu í viku 9 samanborið við undangengnar þrjár vikur. Fjöldi greininga inflúensulíkra einkenna eru sambærilegar milli vikna.

Covid og inflúensa 3

Færri greindust með COVID-19 í viku 9 samanborið við undangengnar fimm vikur. Sýnatökum vegna COVID-19 hefur fækkað. Færri greindust með skarlatssótt, en fleiri með hálsbólgu. Innlögnum á Landspítala vegna COVID-19, inflúensu og RSV hefur fækkað.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í níundu viku ársins 2023.

Sóttvarnalæknir