Fara beint í efnið

29. febrúar 2024

Öndunarfærasýkingar. Vika 8 árið 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Greiningum á COVID-19 og RSV hefur farið stöðugt fækkandi frá áramótum en inflúensa er enn í dreifingu. Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa, enn sem komið er, verið af inflúensustofni A.

Fjöldi inniliggjandi einstaklinga með öndunar­færaveirusýkingar á Landspítala hefur fækkað frá áramótum.

Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Ekki er útséð enn um frekari útbreiðslu frá þessum tilfellum. Bólusetningarátak er yfirstandandi hjá heilsugæslunni til að draga úr áhrifum beggja atvika, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í 8. viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir