Fara beint í efnið

22. febrúar 2024

Öndunarfærasýkingar. Vika 7 árið 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Fjöldi innlagðra einstaklinga með öndunar­færaveirusýkingar á Landspítala fjölgaði í síðustu viku. Fjöldi inflúensu­greininga hefur aukist aðeins að nýju en fjöldi greininga á COVID-19 og RSV hefur hins vegar farið stöðugt fækkandi frá áramótum. Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa, enn sem komið er, verið af inflúensustofni A.

Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Ekki er útséð enn um frekari útbreiðslu frá þessum tilfellum. Bólusetningarátak er yfirstandandi hjá heilsugæslunni til að draga úr áhrifum beggja atvika, fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í 7. viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir