9. febrúar 2023
9. febrúar 2023
Öndunarfærasýkingar. Vika 5 árið 2023
Tilfellum af staðfestri inflúensu fer fækkandi en greiningar af týpu B eru í miklum meirihluta. Klínískum greiningum á inflúensulíkum einkennum fjölgaði lítillega á milli vikna. COVID-19 greiningum fer fjölgandi miðað við síðustu tvær vikur og var yfir fjórðungur sýna jákvæður í undangenginni viku.
Áfram greinast óvenjumörg tilfelli af skarlatssótt og hálsbólgu. Talsvert færri greindust með RSV í viku 5 samanborið við vikurnar á undan.
Innlögnum með eða vegna COVID-19 fer fjölgandi en fáir lögðust inn vegna inflúensu og RSV í undangenginni viku.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í fimmtu viku ársins 2023.
Sóttvarnalæknir