Fara beint í efnið

14. desember 2023

Öndunarfærasýkingar. Vika 49 árið 2023

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra nú í vetur og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Sóttvarnalæknir - logo

Fjöldi COVID-19 greininga er stöðugur en fjöldi greininga á inflúensu virðist vera á uppleið. Fjöldi greininga á RS-veirusýkingu er einnig á uppleið. Fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveiru­sýkingu jókst í byrjun nóvember og hefur vikulegur fjöldi verið nokkuð stöðugur síðan. Flestir sem liggja inni eru með COVID-19 og af þeim voru flestir í aldurshópnum 65 ára og eldri. Börn tveggja ára og yngri eru í meirihluta þeirra sem legið hafa á Landspítala með RSV-greiningu í vetur.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í viku 49 ársins 2023.

Sóttvarnalæknir