7. desember 2023
7. desember 2023
Öndunarfærasýkingar. Vika 48 árið 2023
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra nú í vetur og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
Fjöldi COVID-19 greininga er stöðugur en fjöldi greininga á inflúensu virðist vera á uppleið. Fjöldi greininga á RS-veirusýkingu er einnig á uppleið. Fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu jókst í byrjun nóvember og hefur vikulegur fjöldi verið nokkuð stöðugur síðan.
Flestir sem liggja inni eru með COVID-19 og af þeim voru flestir í aldurshópnum 65 ára og eldri. Börn undir tveggja ára voru í meirihluta af þeim sem lágu inni vegna RSV í viku 48.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í viku 48 ársins 2023.
Sóttvarnalæknir