Fara beint í efnið

25. nóvember 2022

Öndunarfærasýkingar – vika 40-46 2022

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra á haustmánuðum og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Sóttvarnalæknir - logo

Mikið er um öndunarfærasýkingar af völdum mismunandi veira um þessar mundir og inflúensan og RSV eru fyrr á ferðinni en venjulega. Eins og spáð hefur verið stefnir í að þennan fyrsta vetur án sóttvarnaaðgerða vegna COVID-19 leggist árstíðabundnar öndunarfærasýkingar af fullum þunga á landsmenn. Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra á haustmánuðum og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Sóttvarnalæknir