1. febrúar 2024
1. febrúar 2024
Öndunarfærasýkingar. Vika 4 2024
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/18HjtGZrIPZSIceHAUIowH/414a6a5642dc7ff90609cd7faa40ce8f/_ndunarf_ras_kingar_post.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/18HjtGZrIPZSIceHAUIowH/414a6a5642dc7ff90609cd7faa40ce8f/_ndunarf_ras_kingar_post.png?w=774&fm=webp&q=80)
Fjöldi greininga COVID-19, inflúensu og RSV hefur farið fækkandi frá áramótum. Flest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa verið af inflúensustofni A. Fjöldi einstaklinga sem greinist með öndunarfæraveirusýkingu við eða í innlögn á Landspítala í viku hverri hefur fækkað frá áramótum.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í fjórðu viku ársins 2024.
Sóttvarnalæknir