Fara beint í efnið

24. ágúst 2026

Nýtt rit: Geislun í tannröntgenmyndum og landsviðmið

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu um niðurstöður mælinga á geislaskömmtum við hefðbundnar tannröntgenmyndir í munnholi (e. intraoral, IO) fyrir tímabilið 2018 – 2024 og við kjálkabreiðmyndir (OPG) fyrir tímabilið 2023 – 2025.

Tæplega 500 röntgentæki eru í notkun hjá tannlæknum á Íslandi og eru flest þeirra hefðbundin tannröntgentæki til myndatöku með myndnema í munnholi. Undanfarin ár hefur þó sérhæfðum tölvusneiðmyndatækjum (CBCT) fjölgað mikið í tannlækningum og voru þau orðin 25 talsins árið 2025.

Árleg miðgildi fyrir geislaskammta í hefðbundinni tannröntgenmynd og í kjálkabreiðmynd eru kynnt í skýrslunni og breyttust lítið yfir tímabilið sem skýrslan nær yfir. Upplýsingar um geislaskammta frá CBCT tækjum liggja ekki fyrir nema að litlum hluta og því voru þær ekki teknar saman í þessari skýrslu.

Ný landsviðmið fyrir geislaskammta í tannröntgenmyndum og kjálkabreiðmyndum eru kynnt í skýrslunni og á vef Geislavarna. Landsviðmið 2026 fyrir geislaskammt í hefðbundinni tannröntgenmynd með nema í munnholi (IO) er 1,5 mGy. Landsviðmið 2026 fyrir flatargeislun við kjálkabreiðmynd (OPG) er 7 µGy⋅m2. Ekki hafa verið sett landsviðmið vegna CBCT rannsókna þar sem að ekki er til nægilega mikið af gögnum en dæmi frá öðrum löndum koma fram í skýrslunni.

Á tannlæknastofum þar sem meðalgeislaskammtur er yfir útgefnum landsviðmiðum skal leita orsakanna og gera viðeigandi ráðstafanir til lækkunar undir viðmið með skynsamlegu tilliti til aðstæðna. Sé meðalgeislaskammtur verulega undir landsviðmiðum skal kanna myndgæði og greiningargildi þeirra rannsókna sem um ræðir.

Geislaskammtar í hefðbundnum tannröntgenmyndum hafa minnkað frá árinu 2011 en metin áhætta (geislaálagið) hefur staðið í stað þar sem vægisstuðlar vefja sem notaðir eru til að reikna út geislaálag hafa breyst.

Geislavarnir hvetja sérstaklega þá sem starfa við tannlækningar að kynna sér skýrsluna.