Fara beint í efnið

Geislun vegna myndgreiningarrannsókna

Landsviðmið í tannröntgenmyndum

Landsviðmið er tala sem er sett út frá gögnum um geislaskammta frá mörgum notendum röntgentækja og stærð hennar er valin þannig að geislaskammtur í venjulegri rannsókn af meðalstórum sjúklingi á að vera undir landsviðmiði. Þetta er því fyrst og fremst verkfæri til bestunar rannsókna á hverjum og einum stað. Dæmigerður geislaskammtur í rannsókn ætti að jafnaði að vera minni en landsviðmið, en sé hann hærri skal leita leiða til að minnka hann.

Geislaskammtastærðin fyrir hefðbundnar tannröntgenmyndir er geislaskammtur (e. dose). Geislaskammtur er mældur í einingunni Gy sem er jafngild einingunni J / kg og er mælikvarði á orku sem geislun skilur eftir sig í efni per massaeiningu. Algeng geislaskammtastærð í kjálkabreiðmyndum (OPG) er flatargeislun (e. dose area product) sem er mæld t.d. í einingunni µGym2 eða mGycm2 (þessar einingar eru jafngildar en stærðargráðan er ólík á milli þeirra).

Út frá geislaskammti og flatargeislun má áætla geislaálag í hefðbundnum tannröntgenmyndum og kjálkabreiðmyndum með umbreytistuðli. Slíkir útreikningar gefa þó aðeins vísbendingu um geislaálag rannsókna en aldrei nákvæma tölu fyrir einstaka rannsókn/einstakling.

Í töflunni hér að neðan er að finna landsviðmið á Íslandi fyrir tannröntgenmyndir og kjálkabreiðmyndir (OPG) sett árið 2026.

Tegund rannsóknar

Landsviðmið (2026)

Hefðbundin myndataka með nema í munnholi (IO), ein mynd

1,5 mGy

Kjálkabreiðmynd (OPG), ein mynd

7 µGym2 (= 70 mGycm2 = 0,07 Gycm2)

Nánari upplýsingar um geislaskammta í tannröntgenmyndum og kjálkabreiðmyndum er að finna í eftirfarandi skýrslu:

Þjónustuaðili

Geislavarnir ríkisins

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169