Geislun vegna myndgreiningarrannsókna
Landsviðmið í tölvusneiðmyndum
Landsviðmið er tala sem er sett út frá gögnum um geislaskammta frá mörgum notendum og stærð hennar er valin þannig að lengdargeislun í venjulegri rannsókn af meðalstórum sjúklingum á að vera undir landsviðmiði. Þetta er því fyrst og fremst verkfæri til bestunar rannsókna á hverjum og einum stað. Dæmigerð lengdargeislun í heilli rannsókn ætti að jafnaði að vera minni en landsviðmið, en sé hún hærri skal leita leiða til að minnka hana.
Geislaskammtastærðir fyrir tölvusneiðmyndarannsóknir eru computed tomography dose index (CTDI) og lengdargeislun (dose length product, DLP). Út frá lengdargeislun má áætla geislaálag með umbreytistuðli. Slíkir útreikningar gefa þó aðeins vísbendingu um geislaálag rannsókna en aldrei nákvæma tölu fyrir einstaka rannsókn/einstakling. Í töflunni er notaður umbreytistuðull úr ritinu RP-154 European Guidance on Estimating Population Doses from Medical X-Ray Procedures and annexes.
Í töflunni hér að neðan er að finna landsviðmið á Íslandi fyrir tölvusneiðmyndir sett árið 2023.
Líkamshluti, ábending | DLP [mGy*cm] |
|---|---|
Höfuð, heili, blæðing eða blóðþurrð* | 1060 |
Höfuð, ennis- og kinnholubólga | 70 |
Brjósthol, millivefssjúkdómar, meinvörp, æxli | 310 |
Brjósthol, kransæðar (æðarannsókn) | 210 |
Brjóst og kviðarhol, krabbameinseftirlit | 940 |
Kviður, botnlangabólga | 690 |
Kviður, æxli, meinvörp | 770 |
Nýru, æxli (urografía) | 930 |
Nýru, steinar | 470 |
Lendhryggur, áverkar | 620 |
*heili án skuggaefnis
Þjónustuaðili
Geislavarnir ríkisins