9. nóvember 2026
9. nóvember 2026
Notkun geislunar í læknisfræði: evrópskt átak HERCA um réttlætingu
Á síðasta ári hófst herferð HERCA, Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn, sem markaði fyrsta skrefið í sameiginlegu evrópsku átaki um réttlætingu myndgreiningarrannsókna. Nú heldur herferðin áfram, þar sem geislavarnastofnanir víða um Evrópu munu, með samræmdum hætti, leggja sérstaka áherslu á réttlætingu við eftirlit með notkun jónandi geislunar í læknisfræðilegri myndgreiningu.

Átakið hófst í september 2026 og stendur til í júní 2027. Alls taka 15 Evrópulönd þátt í átakinu, þar á meðal Ísland. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu átaksins og í frétt HERCA um upphafð þess.
Geislavarnir ríkisins taka þátt í átakinu og leggja því sérstaka áherslu á réttlætingu við eftirlit með notkun geislunar í læknisfræði í vetur. Við eftirlitið verður farið yfir spurningar tengdar verklagi við réttlætingu myndgreiningarrannsókna og einnig kannað hvaða upplýsingar eru raunverulega til staðar á rannsóknarbeiðnum.
Nánar má lesa um þær kröfur sem eru gerðar til réttlætingar á síðunni Réttlæting notkunar geislunar í læknisfræði.
Sem hluti af átakinu fá geislavarnastofnanir sem taka þátt í átakinu aðgang að hugbúnaði sem metur gæði rannsóknarbeiðna, bæði m.t.t. upplýsinga sem þar koma fram og samanborið við evrópskar leiðbeiningar um val á myndgreiningarrannsóknum.
Geislavarnir hafa leitað til röntgendeilda á Íslandi um samstarf við öflun gagna fyrir slíkt mat og fengið mjög jákvæðar undirtektir.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður átaksins frá þátttökulöndunum 15 verði birtar á árinu 2027.
Með þátttökunni gefst tækifæri til að efla enn frekar gæði og samræmi í réttlætingu myndgreiningarrannsókna. Samstarf við röntgendeildir landsins er mikilvægur þáttur í þeirri vinnu og munu niðurstöður átaksins jafnframt nýtast til að varpa ljósi á stöðu réttlætingar hér á landi og stuðla að markvissum umbótum. Markmiðið er ávallt að tryggja að sjúklingar fái rétta rannsókn, á réttum tíma og á réttum forsendum.