Réttlæting notkunar geislunar í læknisfræði
Skaðleg áhrif geislunar eru vel þekkt en það er óumdeilt að notkun jónandi geislunar í læknisfræði almennt fylgir ávinningur langt umfram mögulega skaðsemi.
Þegar nýjar aðferðir eru teknar í notkun þarf að skoða gagnsemi þeirra. Það er kallað annars stigs réttlæting og þriðja stig réttlætingar er ferlið sem fara þarf í gegnum þegar ákvörðun um notkun geislunar fyrir einstakan sjúkling er tekin.
Samtök evrópskra geislavarnastofnanna (HERCA) hafa gefið út leiðbeiningar um framkvæmd réttlætingar í læknisfræði.
HERCA Position Paper Justification of Individual Medical Exposures for diagnosis
Viðeigandi verklag við réttlætingu rannsókna er hagkvæmasta aðferðin til þess að draga úr geislaálagi einstakra sjúklinga og sjúklinga í heild.
Leiðbeiningarnar fjalla um hlutverk löggjafa, eftirlitsaðila og heilbrigðisstarfsmanna og mikilvægi þess að réttlæting liggi fyrir áður en geislun (rannsókn eða meðferð) fer fram. Til staðar eiga að vera skráðar verklagsreglur og vinnulýsingar til að sýna fram á að réttlæting hafi farið fram fyrir hverja einstaka geislun.
Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram:
nægilegar upplýsingar um klínískt ástand sjúklingsins eins og við á fyrir viðkomandi rannsóknarbeiðni
greiningarspurning(ar) sem leitað er svara við
upplýsingar um fyrri eða samhliða rannsóknir eins og við á
ákvörðun um framkvæmd viðeigandi myndgreiningarrannsóknar, þar sem getið er rannsókna sem ekki hafa í för með sér notkun jónandi geislunar
rekjanleiki ofangreindra þátta til tilvísanda og ábyrgðarmanns
Í sameinuðu átaki evrópskra geislavarnastofnanna um eftirlit með réttlætingu verða skoðuð sex þrep í ferli myndgreiningar:
Klínísk spurning
Beiðni
Mat á réttlætingu og því hvort rannsókn/meðferð er viðeigandi
Ákvörðun
Skráning á ákvörðun
Skýrsla (svar)
Fjallað er um réttlætingu í
Lögum um geislavarnir (44/2002) í 15. grein.
Reglugerð um geislavarnir vegna notkunar geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun (1299/2015) í greinum 23, 33 og 52.
Reglugerð um geislavarnir við notkun opinna geislalinda (809/2003) í greinum 61, 66 og 79.
Sjá einnig: Notkun geislunar í læknisfræði: Áhersla á réttlætingu árið 2026